Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!
Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata
Aldursgreining birgða frá Annata getur aðstoðað þig í að kortleggja ástand birgða þinna.
Birgðastjórnun er afar mikilvægur þáttur í rekstri vörudrifinna fyrirtækja. Einkum þegar ytri aðstæður eins og niðursveifla í efnahagslífi, takmarkaður aðgangur að lánsfé og harðnandi samkeppni hafa áhrif á getu fyrirtækja til að auka veltu og arðsemi. Við slíkar aðstæður þurfa fyrirtæki að líta innávið og finna möguleika til hagræðingar til að auka veltufé frá rekstri. Viðskiptavinir og birgðir eru tveir augljósir þættir sem leita má hagræðingartækifæra í.
Straumlínulögun á ferlum birgðastýringar – raunverulegur ávinningur.
Birgðir eru fjármagnsfrekar í eðli sínu og það getur haft slæmar afleiðingar fyrir fyrirtæki að safna upp miklum birgðum. Birgðir geta hreinlega dagað uppi á lagerum fyrirtækja og orðið til trafala í víðum skilningi. Þær taka ekki aðeins dýrmætt lagerpláss, heldur ýta einnig undir dulda kostnaðarliði eins og fórnarkostnað af fjárbindingu, kostnað vegna minnkandi verðmæti lagers vegna aukins aldurs og þar með lækkandi hagnaðarvonar. Með því að ráðast strax að vandanum og draga úr söfnun gamalla birgða má ná skjótum ávinningi.
20/80 Pareto lögmálið gildir!
Aldursgreining birgða frá Annata aðstoðar greinendur við að finna mikilvægustu vörurnar til aldursgreiningar. Greiningin býður upp á nýstárlega nálgun að aldursgreiningu birgða með því að greina kjarnann frá hisminu og greina þær lykilvörur sem raunverulega skipta málið fyrir fyrirtækið. Tilgreindar eru þær vörur sem munu leiða af sér umtalsverð og áþreifanleg áhrif á afkomu fyrirtækja ef gripið er til markvissra aðgerða á grundvelli aldursgreiningarinnar. Greiningin vinnur á þeirri forsendu að 20% af vörum fyrirtækisins beri um 80% af birgðaverðmætinu.
Notendur stilla upp forsendum fyrir aldursgreiningu í þar til gerðri skjámynd í Dynamics AX/NAV kerfi sínu. Þeir gefa völdum færibreytum vægi á bilinu 1-100 sem svo hafa áhrif á hvaða 20% af vörum fyrirtækisins skulu valdar til aldursgreiningar.
Af hverju er þetta gert í stað þess að aldursgreina allar vörurnar?
Svarið er tvíþætt: til að hraða vinnslum í gagnagrunni og til að beina athygli manna að því sem raunverulega skiptir máli. Hægt er að skilgreina margar sviðsmyndir þar sem færibreytunum er gefið ólíkt vægi. Einnig er hægt að velja tiltekna vöruflokka til greiningar, sem getur verið gagnlegt í þeim tilvikum sem fyrirtæki eru að meðhöndla eðlisólíkar vörur (t.d. bíla og varahluti). Þar með er hægt að setja upp mismunandi sviðsmyndir sem þjóna hagsmunum mismunandi einstaklinga. Að draga úr aldri 20% varanna sem innihalda 80% af verðmætinu hefur mikil áhrif.

