Skip to navigation
Annata hf.

Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!

Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata

Með Annata Business Analytics er leitast við að auka sveigjanleika þeirra sem nota lausnirnar á framsetningu gagna. það er gert með aðgengilegum skjámyndum sem hluta af notendaviðmóti viðkomandi upplýsingakerfis. Um er að ræða hreinar viðbætur við kerfin sem hafa engin áhrif á virkni þeirra en opna engu að síður á möguleikann til að flokka og setja fram grunngögn í kerfinu á mismunandi hátt. 

Annata Business Analytics fyrir Microsoft Dynamics AX og NAV 

Undanfarin ár hafa greindarlausnir (e. Business Intelligence) og OLAP teningar sannað sig sem ómissandi verkfæri fyrir stjórnendur. Lausnir af þessu tagi hafa hjálpað fyrirtækjum að vinna betur úr þeim mikla hafsjó gagna sem er vistaður í upplýsingakerfum þeirra.

Flestir eru sammála um að greindarlausnir hafa í gegnum tíðina uppfyllt þörf stjórnenda eftir upplýsingum um liðna atburði. Hins vegar hefur þörfin farið vaxandi á undanförnum árum eftir auknum sveigjanleika meðhöndlun og á framsetningu gagna, svo hægt sé að leiða fram mælikvarða sem hjálpa til við ákvörðunartökur og framkvæma spár og næmnigreiningar til að sjá fyrir mögulegar sviðsmyndir.

Annata Business Analytics býður upp á eftirfarandi möguleika:

  • Uppsetning fjárhagsskýrslna: Notendur geta skilgreint hvernig fjárhagsskýrslur þeir geta séð í fjárhagsteningi. Þeir geta flokkað bókhaldslyklana í kerfinu eftir eigin höfði með því að stilla upp viðeigandi fyrirsögnum og millifyrirsögnum og tilgreina svo hvaða lyklar eiga að falla undir þær með vali úr bókhaldslyklatöflunni. Þannig má á þægilegan hátt búa til nokkur afbrigði af skýrslum sem nýta ýmist alla eða hluta þeirra bókhaldslykla sem til eru í upplýsingakerfi fyrirtækisins.
  • Uppsetning lykilvara úr birgðabókhaldi: Búa má til vöruflokkanir sem eru óháðar vöruflokkum í birgðabókhaldi. Þessi flokkunarmöguleiki er gagnlegur og öflugur þegar áhugi er fyrir hendi að skoða saman tilteknar vörur án tillits til þess hvaða vöruflokkum þær tilheyra. Hægt er að búa til hópa af vörum sem hafa mismunandi tilgang. Einnig má flokka saman vörur sem hafa svipaða eiginleika en tilheyra að öðru leyti mismunandi vöruflokkum, vörur sem gjarnan eru keyptar saman (til dæmis pasta og pastasósa) eða jafnvel flokka vörur eftir því hvaða vörustjóri ber ábyrgð á þeim.
  • Flokkanir á fjárhagsvíddum: Fyrirtæki eru misdugleg við að nýta sér fjárhagsvíddir. Oft er ein vídd nýtt fyrir deild eða svið, önnur fyrir verkefni eða kostnaðarstað og sú þriðja nýtt fyrir málefni. Eftir því sem tíminn líður er viss hætta á að óreiða skapist innan víddanna sem kallar eftir möguleika til að flokka stök innan einstakra vídda. Því er flokkun á víddum ákaflega gagnleg.
  • Flokkanir á viðskiptamönnum: Oft styðja flokkkanir á viðskiptamönnum ekki við þau sjónarhorn sem notendur vilja sjá. Möguleg ástæða þess getur verið að flokkunin sé byggð á gömlum grunni og þjóni ekki lengur fyrirtækinu nægilega vel. Það er þó ekki alveg fyrirhafnarlaust að endurhanna og breyta viðskiptamannaflokkun í upplýsingakerfum. Að auki geta mismunandi skoðanir á hvaða flokkun skuli vera ráðandi. Með því að nota flokkunarmöguleikann á viðskiptamönnum í Business Analytics frá Annata gefst möguleiki á að búa til flokkanir sem draga fram þau sjónarhorn sem þörf er á. Fyrirtæki geta því stillt upp mismunandi flokkunum á viðskiptamönnum án þess að hrófla við grunnflokkuninni í upplýsingakerfinu.
  • Fjöldi tímabila í greiningum: Hægt er að stilla hversu mörg tímabil (ár) eiga að vera sýnileg í teningunum. Notendur geta því alfarið stýrt því hvort í greiningum séu fá eða mörg tímabil.

Solutions

  

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Senda okkur línu
Smelltu hér til að hafa samband.

Finna einstakan starfsmann
Okkar ráðgjafar.

Okkar skrifstofur
Hér erum við.

Sæktu þér einblöðung

Fjárhagsgreining


Viðskiptamannagreining


Sölugreining


Smásölugreining


Birgðagreining


Aldursgreining birgða


Business Analytics


 

Heim

Heim GreiningarAnnata Analytics