Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!
Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata
Hefur þú næga yfirsýn yfir innkaup og birgðahald?
OLAP birgðagreining er gríðarlega öflugt verkfæri sem gerir stjórnendum mögulegt að grípa til markvissa aðgerða í birgðastjórnun.
Lausnin byggir á Microsoft hugbúnaði og dregur gögn saman í margvíðan gagnatening sem inniheldur ítarlegar upplýsingar um birgðir fyrirtækisins. Upplýsingarnar er hægt að greina út frá ólíkum sjónarhornum og út frá þeim, útbúa staðlaðar skýrslur.
Ábyrg birgðastjórnun er nauðsynleg til þess að mæta eftirspurn viðskiptavina eftir vörum og framleiðslu eftir hráefni til að vinna úr fullunnar vörur. Of mikil birgðasöfnun hækkar tryggingar- og geymslukostnað og leiðir til óþarfs kostnaðar vegna bindingar rekstrarfjármagns.
Góð birgðagreining nýtist stjórnendum til að sjá upplýsingar um:
-
Birgðastöðu í byrjun tímabils
-
Innhreyfingar á tímabilinu
-
Úthreyfingar á tímabilinu
-
Selt magn á tímabilinu
-
Staða í lok tímabils
-
Meðalgeymslutíma
-
Veltuhraða
-
Meðalbirgðir
-
Söludaga í birgðum
-
Arðsemi birgðafjármagns
Öflugt stjórntæki
Ónógar birgðir leiða af sér töpuð viðskipti og of lágt þjónustustig. Sumar birgðir hafa takmarkaðan líftíma og geta runnið út á tíma. Einnig getur átt sér stað rýrnun birgða.
Allt þetta leiðir af sér óæskilegan kostnað og tekjutap. Þörfin á að upplýsingar til markvissrar ákvarðanatöku séu ávallt til staðar er því mikil við stjórnun birgða.
Birgðagreining Annata gerir stjórnendum kleift að greina birgðamál frá ýmsum sjónarhornum.
Þeir geta greint birgðastöðu í sögulegu samhengi, skoðað innkaup, sölu og tengsl milli þróunar birgða og sölu niður á vörur og lagera svo að fáein dæmi séu nefnd.
Aldursgreiningu birgða
Annata býður upp á viðbót við birgðagreininguna sem kallast aldursgreiningu birgða.

