Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!
Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata
Hljóma eftirfarandi spurningar kunnuglega?
- Þarftu að verja miklum hluta tíma þíns í skýrslugerð til að draga upp raunhæfa mynd af rekstri fyrirtækisins?
- Berast fjárhagslegar upplýsingar seint og illa til þín?
- Áttu í erfiðleikum með að greina þróun lykilstærða í rekstrinum?
- Er erfitt að ná góðum upplýsingum úr þeim upplýsingakerfum sem fyrirtækið nýtir?
- Er erfitt að greina frávik frá áætlunum?
Fyrirframskilgreindar Excelskýrslur og greiningar sem byggðar eru á fjárhagsgreiningum Annata leyfa stjórnendum að nálgast ítarlegar upplýsingar um rekstur og efnahag og þróun lykilstærða á augabragði.
Fjárhagsgreining Annata
Með fjárhagsgreiningu geta stjórnendur fyrirtækja haft púlsinn á þróun fjárhagslegra lykilmælikvarða (e. Key Performance Indicators, KPI´s) öllum stundum.
Allir þræðir í starfsemi fyrirtækisins koma saman í fjárhagsbókhaldinu. Þar kemur fram hvernig öllum lykilþáttum í verðmætasköpuninni hefur verið sinnt.
Greina má hver arðsemin hefur verið og hvernig ráðstöfun þess fjármagns sem reksturinn skapar hefur verið háttað. Góður aðgangur að réttum upplýsingum á réttum tíma hlýtur því að vera lykilatriði í starfi góðs stjórnanda.
Lykiltölugreining (KPI´s)
Fjárhagskerfin geyma sögu lykilstærða (KPI´s) í rekstrinum aftur í tímann. Þær er hægt að skoða með OLAP á grafíska hátt og koma þannig auga á þróun og sveiflur.
Til dæmis má skoða breytingar í hagnaði, hagnaðarhlutfalli, lykiltölum um arðsemi, fjárbindingu í birgðum, fjárbindingu í viðskiptakröfum, útistandandi viðskiptakröfum, veltuhraða fastafjármuna, veltuhraða eigna, lykiltölum um nýtingu fjármagns, lykiltölum um greiðsluhæfi, veltufjárhlutfalli, lausafjárhlutfalli, V/H hlutfalli, Q hlutfalli og fleira.

