Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!
Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata
Ómissandi í sölu- og markaðsstarf
Með OLAP sölugreiningu frá Annata gefst tækifæri á að greina sölu og framlegð fyrirtækisins niður á einstaka vörur og vöruflokka, viðskiptamenn, sölumenn, verslanir og tímabil. Hægt er að fylgjast með því hvernig salan er að þróast dag frá degi og fá þannig innsýn í söluþróunina og hvort markmið söluáætlunarinnar séu að nást.
Góð sölugreining nýtist stjórnendum til að bregðast skjótt við aðsteðjandi vanda og ná auknum árangri í samkeppninni.
Hljóma eftirfarandi vandamál kunnuglega í þínu fyrirtæki?
- Það er erfitt að fá yfirsýn yfir reksturinn á fljótlegan og einfaldan máta.
- Það er erfitt að sjá hvaða vörur eru að seljast og hvaða vörur ekki.
- Erfitt að sjá hvort framlegð er að aukast eða minnka.
- Vinnslukerfin (viðskhugb.) skrá allt en upplýsa ekki stjórnendur.
- Viðskiptahugbúnaður er ekki nýttur til að umbreyta gögnum í nothæfar upplýsingar.
Ávinningurinn er augljós og skýr!
- Mikill tími sparast við úrvinnslu upplýsinga þar sem öll flækjustig við samþættingu gagnana eru úr sögunni. Heildaryfirsýn er því tryggð.
- Áhrif auglýsingaherferða og kynninga verða sýnilegri.
- Markaðsaðgerðir verða markvissari og beinskeyttari. Leiðir til tekjuaukningar skapast og sóun minnkar.
- Auðveldara verður að spá fyrir um sölu, sveiflur verða skýrari og innkaupastýring verður markvissari hjá fyrirtækinu.
- Auðveldara verður að komast hjá vöruvöntun og minnka umframbirgðir.
- Árangur á þessum sviðum leiðir af sér auknar tekjur og lægri fjármagnskostnað.
Ertu í verslunarrekstri?
Annata býður smásölugreining sem er sérstaklega sniðið að íslenskum verslunarkeðjur.

