Skip to navigation
Annata hf.

Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!

Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata

Verkbókhaldsgreining

Fyrirtæki sem byggja afkomu sína á sölu þekkingar og hugvits nýta sér oftar en ekki verkbókhald í upplýsingakerfum. Kerfin nýtast til að halda utan um vinnu starfsmanna niður á mismunandi verkefni. Þar liggja verðmætar upplýsingar um tekjur, kostnað, útselda tíma og framlegð, svo að dæmi séu nefnd.

Annata hefur þróað greiningarlausnir fyrir verkbókhald í Cognos og MS OLAP sem ætlað er að veita ítarlegar og greinargóðar upplýsingar úr verkbókhaldi á kjótan og aðgengilegan hátt. Boðið er upp á greiningar úr verkbókhaldi Microsoft Dynamics AX, Microsoft Dynamics NAV en lausnirnar má einnig aðlaga fyrir verkbókhald annara kerfa.

verkbókhaldsgreining_small

Í þeim kerfum sem notuð eru til skráningar er gagnaframsetning gjarnan sundurlaus og getur reynst erfitt að öðlast nauðsynlega yfirsýn. Með því að greina verkbókhaldsupplýsingar í margvíðu og sveigjanlegu umhverfi þá tekst að fá svör við ýmsum áleitnum og mikilvægum spurningum eins og:

  • Hvernig er heildartekjumyndun fyrirtækisins? Er hún í samræmi við væntingar?
  • Hvernig er framlegð einstakra verka? Eru ákveðnir vekefnastjórar að stýra verkum betur en aðrir?
  • Hvernig eru einstakir starfsmenn að standa sig?
  • Hvernig er tekjumyndun á ákveðna verkþætti?
  • Hver er tekjuþróun yfirstandandi mánaðar á einstök verk og/eða viðskiptavini?

Víddir og mælieiningar

  

Víddir 

Tími:

  • Dagsetningar
  • Mánuðir - uppsöfnuð tímabil

Verk:

  • Verkflokkar
  • Tegundir verka
  • Viðskiptamenn og verk
  • Aðalverkþættir
  • Undirverkþættir
  • Staða verka
  • Færslutegundir
  • Verkefnastjórar og verk
  • Forðar og forðategundir

Mælieiningar

Arðsemi

  • Tekjur venga útseldrar vinnu, kostnaðarverð útseldra vinnu, framlegð (%), Kostnaðarverð vinnu (söluverðmæti)
  • Önnur sala úr forðabókhaldi, kostnaðarverð sölur úr forðabókhaldi, framlegð (%), kostnaðarverð sölu úr forðabókhaldi (söluverðmæti)
  • Heildarframlegð, heildarframlegð (%)

Magntölur

  • Seldir tímar, notaðir tímar, selt magn, notað magn

Áætlanir

  • Áætlaðir tekjur v/útseldrar vinnu, áætlaðir tekjur á verk, áætlaðir seldir tímar á verk, fráviksmælikvarðar í magni og hlutföllum

Óbókaðir verkfærslur

  • Óbókaðir tekjur vegna útseldrar vinnu, óbókað kostnaðarverð v/útseldrar vinnu, framlegð, framlegð (%), óbókaðir útseldir tímar.

  

Ný sýn

Greining frávika í verkbókhaldi verður leikur einn. Haægt er að bora sig niður á smæstu þætti innan einstakra verkþátta, skipta út sjónarhornum á augabragði og skoða gagnvart þeim mælikvörðum sem máli skipta hverju sinni.

Með verkbókhaldsgreiningu þá opnast ný veröld þar sem verðmætar upplýsingar eru gerðar aðgengilegar eins og þú þarft á þeim að halda. Einugnis er þörf á að stilla upp skýrslum í eitt skipti. Skýrslurnar uppfærast með nýjustu upplýsingum hverju sinni svo segja má að nýjar upplýsingar séu aðgengilegar með nokkrum músasmellum.


Solutions

  

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Senda okkur línu
Smelltu hér til að hafa samband.

Finna einstakan starfsmann
Okkar ráðgjafar.

Okkar skrifstofur
Hér erum við.

Sæktu þér einblöðung

Fjárhagsgreining


Viðskiptamannagreining


Sölugreining


Smásölugreining


Birgðagreining


Aldursgreining birgða


Business Analytics


 

Heim

Heim GreiningarGreiningarlausnirVerkbókhaldsgreining