Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!
Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata
Hversu vel þekkir þú viðskiptamenn þína?
Góð og öflug viðskiptasambönd eru hverju fyrirtæki mikilvæg. Viðskiptamenn eru mikilvæg lífæð fyrir starfsemi fyrirtækja þar sem þeir eru oftar en ekki drifkraftur sköpunar og vaxtar í starfseminni.
Það vill þó gjarnan gleymast að framlegð af seldri vöru og þjónustu er einungis eitt greiningarstig af mörgum í því ferli að þekkja hegðun og þarfir viðskiptamanna. Skýr sýn á þætti eins og greiðsluhegðun, kauphegðun og áhrif viðskiptamanns á vöxt og viðgang fyrirtækis skipta einnig miklu máli. Skipta má þeim mælikvörðum sem viðskiptamannagreining Annata inniheldur í fjóra þætti:
Arðsemi
- Nettósala og kostnaðarverð seldra vara
- Vöru- og þjónustuframlegð (%)
Kauphegðun
- Fjöldi vara sem keyptur er og kaupupphæð
- Meðalfjöldi vara sem keyptur er og fjöldi innkaupa
Greiðsluhegðun
- Útistandandi kröfur og ójafnaðar innborganir
- Biðtími útistandandi krafna og veltuhraði viðskiptakrafna
Vöxtur
- Nýjir viðskiptamenn og hlutdeild þeirra í sölu
- Og fleira (sjá einblöðungurinn)
Viðskiptamannagreininingin sýnir framlegðarstig á arðsemi viðskiptamanna.
Viðskiptamannagreining Annata gerir kleift að horfa á fleiri framlegðarstig í greiningu á arðsemi viðskiptamanna. Dragi viðskiptamaður greiðslur á útsendum reikningum þá verður fyrirtækið fyrir fórnarkostnaði þar sem það verður af tækifærum á að ráðstafa fjármagninu í aðra hluti.
Ef viðskiptamaðurinn greiðir ekki vanskilakostnað þá er eðlilegt að fórnarkostnaður fyrirtækisins komi til lækkunar á vöru- og þjónustuframlegð af honum. Eins á það að hafa áhrif á viðskiptamannaframlegð ef viðskiptamaðurinn þiggur sölu- og markaðshvetjandi styrki frá fyrirtækinu.
Sama á við um þætti eins og dreifingarkostnað. Þegar kostnaður af öllum ferlum sem snúa að samskiptum við viðskiptamanni (sem heimfæranlegur er á viðskiptamenn) er tekinn saman og dreginn frá vöru- og þjónustuframlegð þá er fyrst hægt að nálgast raunverulega framlegð af viðskiptamönnum.

