Skip to navigation
Annata hf.

Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!

Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata

Annata er leiðandi þekkingarfyrirtæki á sviði viðskiptahugbúnaðar með um 60 sérfræðinga sem starfa í fjórum löndum. Sérsvið fyrirtækisins er annars vegar þjónusta og ráðgjöf við Microsoft Dynamics Ax upplýsingakerfi og hins vegar þjónusta og ráðgjöf á sviði greindarlausna (Business Intelligence (BI)) með notkun Microsoft BI og Cognos hugbúnaðar. 

Markmið fyrirtækisins er að nýta þekkingu sína og reynslu til að hjálpa viðskiptavinum að ná auknum árangri í starfsemi sinni með hagnýtingu öflugra lausna í upplýsingatækni. 

Viðskiptavinir Annata eru meðalstór og stór íslensk fyriræki og meðalstór og stór erlend fyrirtæki í völdum iðngreinum. Þetta eru aðilar sem verja töluverðar upphæður í UT mál og sækjast eftir ráðgefandi þjónustu á háu stigi í tengslum við kaup og innleiðingu á hugbúnaðarlausnum.


Dæmi um viðskiptavini Annata eru:

  • Marel
  • Garri
  • Sölufélag garðyrkjumanna (SFG)
  • Hekla
  • Icelandair
  • 66°Norður
  • Toyota á Íslandi
  • Landsbankinn
  • ÍSAM
  • KPMG
  • Capacent
  • Plastprent
  • Mjólkursamsalan
  • Allianz
  • Okkar Líftryggingar
  • Volvo Construction Equipment (Svíþjóð)
  • SC Motors / Hyundai (Svíþjóð)
  • AEW Delford (Bretland)
  • N1
  • RÚV

 

Starfsfólk

Hjá Annata starfar öflugur hópur einstaklinga með breiða menntun, þekkingu og reynslu.

Annata leggur mikið upp úr að skapa umhverfi fyrir starfsfólk þar sem það hefur rými til að sækja sér nýja þekkingu.  Starfsfólk er hvatt og stutt til frekara náms.

Mat á umsækjendum og ráðningarferlið í heild er stöðugt viðfangsefni og skilgreind sem lykilhæfni hjá fyrirtækinu.

Vinnuaðferðir

Annata fylgir verkstjórnaraðferðafræði frá Microsoft sem kallast SureStep.

Við þróun, innleiðingu og þjónustu á hugbúnaði fylgir Annata bestu venjum og kröfum framleiðanda þess hugbúnaðar sem unnið er með hverju sinni. Starfsfólk Annata nýtur formlegrar menntunar og hlýtur vottun hjá framleiðendum. Flestir ráðgjafar Annata hafa setið námskeið og/eða eru vottaðir sérfræðingar á sviði Microsoft og Cognos lausna.


Solutions

  

Hafðu samband

Það er auðvelt að hafa samband við okkur. Þú einfaldlega velur einn af kostunum hér að neðan:

Senda okkur línu
Smelltu hér til að hafa samband.

Finna einstakan starfsmann
Okkar ráðgjafar.

Okkar skrifstofur
Hér erum við.

Sæktu þér einblöðung

Fjárhagsgreining


Viðskiptamannagreining


Sölugreining


Smásölugreining


Birgðagreining


Aldursgreining birgða


Business Analytics


 

Heim

Heim Um Annata