Skip to navigation
Annata hf.

Þekking, reynsla og hugvit í fremstu röð!

Öflugar viðskipta- og greindarlausnir frá Annata

15. Jan 2010

Annata á „Best of TechEd & Convergence 2010"

Dagana 26. og 27. janúar nk. verður ráðstefnan „Best of TechEd & Convergence 2010" haldin í Reykjavík á vegum Microsoft á Íslandi. Fram kemur í tilkynningu að von sé á 1.000 ráðstefnugestum, þar af 100 erlendum gestum.

 

Þetta er í annað skipti sem Microsoft blæs til slíkrar ráðstefnu hér á landi en fyrsta ráðstefnan, sem haldin var fyrir ári, var fjölmennasta ráðstefna sem haldin hefur verið í upplýsingatækni á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu.

 

Á síðasta ári sóttu 850 gestir ráðstefnuna, en að þessu sinni er gert ráð fyrir yfir 1.000 gestum, þar af um 100 erlendum sem koma gagngert til landsins til að sækja ráðstefnuna.


 

Heim

Heim Um AnnataFréttir